Þessi einstaka jörð er til sölu. Hún hefur verið vettvangur skógræktar, útiveru, náttúruskoðunar og margvíslegrar annarrar afþreyingar síðan búskapur lagðist þar af um aldamótin. Hér er einstakt tækifæri til að eignast jörðina og njóta allra þeirra upplifana og tækifæra sem hún hefur upp á að bjóða.
Það tekur um 2 klst og 20 mínútur að aka að Kletti frá Reykjavík. Nálægustu þéttbýlisstaðir eru Reykhólar (25 km / 20 mín) og Búðardalur (50 km / 35 mín). Vegurinn er malbikaður alla leiðina og greiðfær allt árið.
Fjölbreyttir náttúru- og mannvirkjakostir gera Klett að einstöku tækifæri á íslenskum fasteignamarkaði.
Húsakostur
Á jörðinni er gott og nútímalegt 200 m2 einbýlishús með 4 svefnherbergjum, rúmgóðri stofu, setustofu, eldhúsi og tveimur baðherbergjum.
Jarðhiti
Á jörðinni er afkastamikil borhola sem dugar til að hita heilt þorp. Á pallinum er heitur pottur og líklega enginn pottur á Íslandi með betra útsýni!
Víðsýni
Útsynið yfir Breiðafjörð er einstakt, enda stendur bærinn hátt. Þar blasa við eyjarnar á Breiðafirði og á björtum degi sést Snæfellsnes og Snæfellsjökull. Sólarlagið er einstaklega fallegt í þessari umgjörð.
Fjaran
Klettur á land að sjónum og það er gaman að fara meðfram Klettsgili niður í fjöruna, til að fylgjast með fjöru- og fuglalífinu þar.
Útivist
Fjallið er frábær vettvangur fyrir gönguferðir og aðra útivist.
Svæðið er jarðfræðilega mjög áhugavert, enda er það hluti af Króksfjarðareldstöðinni. Þetta veitir heillandi sýn á eldvirkni fortíðarinnar með sérstökum bergmyndunum og landslagi sem hefur mótast af fornri eldvirkni og er efni margra vísindaritgerða. Í Sanddalnum ofan við bæinn er litríkt og fjölbreytt berg og jarðmyndanir. Bærinn stendur á stóru berghlaupi sem varð þegar jökull hvarf úr dalnum fyrir um 10.000 árum síðan.
Áform eru uppi um þéttbýlismyndun í Króksfjarðarnesi, sem er aðeins 5 km í burtu. Heita vatnið á Kletti getur verið mikilvægur þáttur í þeim áformum. Einnig getur heita vatnið nýst til upphitunar á gróðurhúsum, til að hita upp lón fyrir ferðaþjónustu eða til annars konar nýtingar.
Dragið með mús/fingri til að skoða í 360° • Smellið á hnappa til að skipta um sjónarhorn
Upplifðu fegurð Geiradals og Kletts í hreyfimyndum.